Íslenskir sjómenn (In memoriam)

Íslenskir sjómenn (In memoriam)
(Lag og texti: Bubbi Morthens)

Þennan dag var rjúkandi roð og kvikn
öskugráa öldu við himin bar
trollið var fast og við fundum slinkinn
sem færði okkur á kaf í öldurnar.

Vírarnir strekktir sem strengir á gítar,
lögðumst á hliðina ofurhægt
síðan hvinur í lofti er vírarnir brustu
augnablik var eins og hefði lægt.

Brumaldan hvíta berðu þeim kveðju
sem biðu heima eftir mér
segðu þeim að ég hafi hugsað til þeirra
og í huga mínum var myndin af þér.

Uppi á hamrinum fólkið hópaðist saman
horfði á skipið þokast nær
með lófann krepptan um stálið
ég starði á brimöldunnar gráhvítu klær.

Við klettabergið beið okkur gröfin
beðurinn kaldi þennan dag
skipið njörvað nötrandi á skeri
að gliðna í sundur við öldunnar slag.

[af plötunni Bubbi Morthens – Tvíburinn]