Kata knús

Kata knús
(Lag / texti: erlent lag / Davíð Þór Jónsson)

Þetta er sagan af Kötu knús.
Hún var klár stelpa, falleg og iðin sem lús.
Á jörðu sem á himni allt var henni fært,
en hjarta hennar var of saklaust og tært.

Kata var á föstu með Fúsa ljóta,
en Fúsi taldist til verstu þrjóta.
Hann fór með hana í Kínahverfið á bar
og kenndi henni trixin sem virka þar.

En Kötu dreymdi oft að kóngur Svía
kyssti hana og færði inn í veröld nýja,
gæfi henni djásn og demantaskrín,
dýrgripi marga og limósín.

Hann færði henni fáka svo fima og netta
og færði henni máltíðir tólf rétta.
Hann gaf henni peninga, svolítinn sjóð
sem sat hún og taldi líkt og væri hún óð.

[af plötunni Bugsy Malone – úr leikriti]