Kossar án vara
(Lag og texti: Bubbi Morthens)
Það snjóar hérna úti og garðurinn hann gránar.
Garðastrætishúsin verða hlýleg að sjá
og kertaljóssins skuggar skrýtnum myndum varpa
á veggina í stofunni sem ég stari á.
Og myndirnar þar læðast lúmskar inn í hugann,
leggjast bak við augun og hvísla því að mér
að ástin sé augnablik sem brenni mannsins hjarta,
í brjósti mínu er eldurinn enn að leika sér.
Og þau svífa í kvöld snjókornin
sem kossar án vara.
Og við sem vorum ástfangin
aldrei náðum saman,
það lá alltaf í loftinu
að ég mundi fara.
Það snjóar hérna úti og enginn er á ferli,
allt er hjúpað rökkri og kertin eru dauð.
Senn fer hann að birta og bílar vakna kaldir
en borgin sefur ennþá og gatan mín er auð.
[af plötunni Bubbi Morthens – Von]