Liljan

Liljan
(Lag / texti: erlent lag / Þorsteinn Gíslason)

Ég leit eina lilju í holti,
hún lifði hjá steinum á mel.
Svo blíð og svo björt og svo auðmjúk,
en blettinn sinn prýddi svo vel.
Ég veit það er úti um engi
mörg önnur sem glitrar og skín.
Ég þræti’ ekki um litinn né ljómann,
en liljan í holtinu’  er mín.

Þessi lilja’ er mín lifandi trú,
þessi lilja’ er mín lifandi trú.
Hún er ljós mitt og von mín og yndi.
Þessi lilja’ er mín lifandi trú.

Og þó að í vindinum visni
á völlum og engjum hvert blóm,
og haustvindar blási um heiðar
með hörðum og deyjandi róm.
Og veturinn komi með kulda
og klaka og hríðar og snjó
hún lifir í hug mér sú lilja,
og líf hennar veitir mér ró.

[m.a. á plötunni Kór Akraneskirkju – Á hverjum degi]