Litla kvæðið um litlu hjónin

Litla kvæðið um litlu hjónin
(Lag / texti: Páll Ísólfsson / Davíð Stefánsson)

Við lítinn vog, í litlum bæ er lítið hús – lítið hús
Í leyni inní lágum vegg er lítil mús – lítil mús.
Um litlar stofur læðast hægt og lítil hjón,
því lágvaxin er litla Gunna og litli Jón.

Þau eiga lágt og lítið borð og lítinn disk – lítinn disk
og litla skeið og lítinn hníf og lítinn fisk – lítinn fisk
og lítið kaffi, lítið brauð og lítil grjón.
því lítið borða litla Gunna og litli Jón,

Þau eiga bæði létt og lítið leyndarmál – leyndarmál
og lífið gaf þeim lítinn heila og litla sál – litla sál.
Þau miða allt sitt litla líf við lítinn bæ
og lágan himin, litla jörð og lygnan sæ.

Þau höfðu lengi litla von um lítil börn – lítil börn
sem léku sér með lítil skip við litla tjörn – litla tjörn.
en loksins sveik sú litla von þau litlu flón,
og lítið elskar litla Gunna  hann litla Jón.

[m.a. á plötunni Hljómsveit Ingimars Eydal – Kvöldið er okkar]