Of hrædd

Of hrædd
(Lag og texti: Bubbi Morthens)

Of hrædd til að lifa, of hrædd við að deyja, of hrædd til að verja það sem þú hefur að segja.
Of hrædd til að gráta, of hrædd til að særast, of hrædd við að missa það sem okkur er kærast.

Dauðinn er poppkorn að kvöldi í bíó.
Dauðinn er prentsverta á síðu þrjú.
Dauðinn er frétt um fátækt í Ríó.
Dauðinn er fljótið þar sem enginn byggði brú.
Dauðinn er útlaginn sem enginn vill þekkja.
Dauðinn er sá sem allir vildu blekkja.

Of hrædd við að elska, of hrædd við að bíða, of hrædd við hjartað sem er fullt af kvíða.
Of hrædd við ábyrgð, of hrædd við að lofa, of hrædd við drauma sem þurfa aldrei að sofa.

Lífið er hetjan sem flestir vildu vera.
Lífið er barnið sem mæður vilja bera.
Lífið er gleðni við að læra að gefa.
Lífið er að elska sig sjálfan án efa.
Lífið er skugginn af þínum eigin skugga.
Lífið er sólskin, myrkur og mugga.

[af plötunni Bubbi Morthens – Von]