Þingmannagæla

Þingmannagæla
(Lag og texti: Bubbi Morthens)

Er nokkuð skárra að lifa út á landi eða lömunin betri hér?
Er það praktískt að sjúga mjólk úr sandi, er hægt að synda í frjósandi hver?
Þingmaður og svarið er já já.
Þingmaður og svarið er nei nei.

Mig langar að trúa þér, trúa trúa trúa.
Eru orð þín ætluð mér?
Trúa trúa trúa.

Er sólin víxill semvaknar hjá Denna, er vorið misnotað barn?
Er Jónas Hallgríms á himnum að brenn, er Hitler að vefa þar garn?
Þingmaður og svarið er já já.
Þingmaður og svarið er nei nei.

Er helvíti Dantes Íslands óður, allt hafið bleik klósettskál?
Var Neró hinn ljúfi á lýrunni góður, hafa lögfræðingar sál?
Þingmaður og svarið er já já.
Þingmaður og svarið er nei nei.

[af plötunni Bubbi Morthens – Von]