Hroki

Hroki
(Lag og texti: Bubbi Morthens)

Menn ráfa hér um götur frekar guggnir að sjá,
gæfan virðist löngu frá þeim horfin,
og hjörtun í fólkinu friðlaust taktinn slá,
fjötruð sem steinninn brimsorfinn.

Og vinnan hér er engin og augun virka sljó,
allir hafa sömu sögu að segja,
menn leita að fiskinum en finna ekki nóg,
það er fríkað að sjá heilt byggðarlag deyja.

Og Anna flutti ræðu um fiskinn og slorið,
frjálsleg þar sem hún stóð
og virtist ekki skilja óttann sem hvílir
yfir hennar eigin þjóð.

Aldrei hefur hún staðið og starað niðurbrotin
með strenginn í brjóstinu brostinn.
Það er erfit að berjast baráttuvilja þrotinn,
brotið stolt er verra en hungrið og þorstinn.

[af plötunni Bubbi Morthens – Von]