Sá sem gaf þér ljósið
(Lag og texti: Bubbi Morthens)
Bókin segir allt sem er,
allt sem er býr í þér.
Þú ert hann, hann er þú,
hamingjan er hin sanna trú.
Vita skaltu vinur minn
fyrir ofan himininn
er einn sem ofar öllu er,
sá sem gaf þér ljósið.
Faðir regnsins og regnbogans,
réttlát eru verkin hans,
trjánum gaf hið græna lauf,
gegnum myrkrið ljós hans smaug.
Þröngur virðist vegur hans,
sá vegur er leiðin til sannleikans,
orð hans græða og færa frið,
faðirinn vakir þér við hlið.
Vita skaltu vinur minn
fyrir ofan himininn
er einn sem ofar öllu er,
sá sem gaf þér ljósið.
Faðir tímans og allt sem er,
faðir þess góða sem grær í þér,
þjófur eða kóngur hann krýnir þig,
í kærleikans nafni snerti mig.
Þeim sem áttu enga von,
ást sína gaf hann og sinn son,
menn benda á þig og gera grín,
þessi gaf herranum árin sín.
Vita skaltu vinur minn
fyrir ofan himininn
er einn sem ofar öllu er,
sá sem gaf þér ljósið.
Bókin segir allt sem er,
allt sem er býr í þér,
elska skaltu náungann.
Elska skaltu,
elska skaltu,
elska skaltu náungann.
[af plötunni Bubbi Morthens – Allar áttir]