Það er aðeins ein

Það er aðeins ein
(Lag og texti: Bubbi Morthens)

Skipin sigla suður,
sumarið bíður þar,
fólkið er farið burt
að finna hið rétta svar,
hinum megin við hafið
í draumum fólksins falið
er það að finna en enginn veit hvar,
það er aðeins ein, það er aðeins ein,
það ert þú.

Sumir sáu drauminn
sigla hin dökku höf
þar sem villuljósin lýsa
látnum sína gröf
en skipið okkar bíður,
það er aðeins tíminn sem líður
og veldur þessari leiðu töf,
það er aðeins ein, það er aðeins ein,
og það ert þú.

Ef ég hefði vængi
þá væri ég ekki hér,
ég vildi geta flogið
burt í fangið á þér
þangað sem dagarnir fara,
þar sem augu tímans stara
og ég mundi svara,
þessi stúlka er með mér.

[af plötunni Bubbi Morthens – Allar áttir]