Síðasti dansinn
(Lag / texti: Óðinn G. Þórarinsson / Loftur Guðmundsson)
Þennan síðasta dans vil ég svífa með þér
eina svipstund við tónanna klið.
Gleyma brimróti‘ og nótt,
gleyma að bryggjuna við
liggur bátur sem stefnt skal á mið.
Láta yl þinn og bros tendra í æðum mér glóð
til að orna við draumljúfri þrá.
Þegar stillt er á sæ, þegar stjarnanna skin
gulli stráir um byrðing og rá.
Og er síðasti tónn þess seiðmjúka lags
hefur svifið frá tirandi streng.
Með hans bergmál að fylgd
og með bros þitt í sál
niður bryggjuna hljóður ég geng.
Marga svartnættis vakt þennan síðasta dans
mun ég svífa með þér yfir dröfn.
Gegnum svarrandi brim, heyra seiðmjúkan tón
kalla sjómann í draumanna höfn.
[m.a. á plötunni Hljómsveit Friðjóns Jóhanssonar – Við tónanna klið]