Ég er farmaður fæddur á landi

Ég er farmaður fæddur á landi
(Lag / texti: Árni Ísleifsson / Aðalsteinn Aðalsteinsson)

Ég er farmaður fæddur á landi,
ekki forlögin haf því breytt.
Það sem brimaldan sogast að sandi
hef ég sælustu stundunum eytt.

En nú á ég kærustu‘ á Kúbu
og kannski svo aðra í höfn.
En því meir sem ferðunum fjölgar
ég forðast að muna þau nöfn.

Því konan mín heima og krakkarnir átta
þau kunna að rífast og þrátta.
Því konan mín heima og krakkarnir átta
þau kunna að rífast og þrátta.

[m.a. á plötunni Haukur Morthens – Ó, borg mín borg]