Þínir löngu grönnu fingur

Þínir löngu grönnu fingur
(Lag og texti: Bubbi Morthens)

Sem dagur og nótt voru augun grá,
opin kvika, full af þrá.
Sem sorgmætt haf var hugur þinn,
og hljómurinn ómar, vinur minn.

Þessar sérstöku hendur og hlátur þinn
og hjartað sem ól þér tóninn sinn,
þetta glott út í annað og ekkert var bannað,
og ástfangnir fungur skópu galdurinn.

Þú vaktir með draumum dimmar nætur
meðan dagurinn svaf við þína fætur.
Sumir fórna öllu til að öðlast þann tón
sem aðeins lifir þegar sálin grætur.

Snilligáfa er aðeins einstökum gefið.
Angist hennar systir og bróðir hennar efinn
á eftir þér höktu þegar heimurinn beið þín.
Á hamingjunnar braut eru vandrötuð skrefin.

Sem dagur og nótt voru augun grá
opin kvika, full af þrá.
Sem sorgmætt haf var hugur þinn
og hljómurinn ómar, vinur minn.

[af plötunni Bubbi Morthens – Von]