Það er gott að elska
(Lag og texti: Bubbi Morthens)
Það var einn morgun snemma sumars þegar sólin kíkti inn,
ég sat við gluggann með kaffið, var að horfa á himininn,
geislarnir tipluðu á hvítum fótum og földu brosin sín
og fundu þig undir sænginni mjúku og opnuðu augu þín.
Það er gott að elska,
það er gott að elska,
það er gott að elska
konu eins og þig.
Þú býður mér blíðlega góðan dag og drekkur þitt kínverska te,
dimmblá fegurð augna þinn er það eina sem ég sé.
Það er ljúft að horfa á þig og finna friðinn sem leggur frá þér,
þú ert falleg svona nývöknuð, þú ert allt sem ég óska mér.
Það er gott að elska,
það er gott að elska,
það er gott að elska
konu eins og þig.
Og nú er ég orðinn faðir og finn hvursu ljúft það er
að fá furðu smáar hendur að morgni dag um háls á mér.
Gagnvart konu eins og þér er ástin mitt eina svar
og ef það er líf eftir þetta þá mun ég elska þig líka þar.
Það er gott að elska,
það er gott að elska,
það er gott að elska
konu eins og þig.
[af plötunni Bubbi Morthens – Lífið er ljúft]