Þrjótar
(Lag / texti: erlent lag / Davíð Þór Jónsson)
Við gátum gert hvað sem við vildum líf okkar við,
verið í myrkri‘ eða sól.
Við vorum snjallir og ákváðum allir
að það væri ágætt að vera fól.
Við gátum gert hvað sem við vildum líf okkar við,
og valið allt annað mót.
Höngum á knæpum og öskrum og æpum
að við erum almestu heimsins þrjótar.
Það er enginn verri en við,
viðskotaillir rustar sem að gefa engum grið.
Þrjótar. Myrkraverkamenn,
mannvonskan er stolt okkar og leiðarljós í senn.
Látum það berast um öll jarðar ból
að við erum bestir að vera fól.
Við gátum gert hvað sem við vildum líf okkar við
og völdum auðvelda leið,
urðum svo illir að allflesta hryllir.
Ég er svo mikill ansans skratti
að það hálfa væri slatti.
Við gátum gert hvað sem við vildum líf okkar við,
verið í myrkri‘ eða sól.
Þjálfun við fengum og eirum nú engum.
Já, við erum alverstu heimsins fól.
[af plötunni Bugsy Malone – úr leikriti]