Utangarðsmenn

Utangarðsmenn
(Lag og texti: Bubbi Morthens)

Góðu tímarnir eru búnir
þar sem sólarupprás þýddi nýjan leik
fyrir tímann gamlir og fúnir
af ofneyslu draummálstaðar sem sveik.
Manstu ströndina sem kældi okkur heitum,
gerðist hvíla okkar er allt annað þraut,
tíminn var afstæð gjöf í helgum pípum,
ég eins og hinir valdi sömu braut.

Það er framtíðin sem skiptir máli
fyrir litla stelpu og lítinn strák,
vörum þau við þessu báli.
Vinirnir falla, við þegjum í hel þessi dráp.

Brautin sem viðruddum sveittir saman
er grýttari en þegar við lögðum af stað,
við koksuðum á því að vera töff, hafa gaman
í staðinn að vera vakandi og varast það.
Fólkið sem kom í upphafi tímans
hlustar á diskó segir „þetta er nýbylgju bít“
Það er þess virði að hefja upp gamla fánann
við þurfum að moka út þessum skít.

Það er framtíðin sem skiptir máli
fyrir litla stelpu og lítinn strák,
vörum þau við þessu báli.
Vinirnir falla, við þegjum í hel þessi dráp.

[af plötunni Bubbi Morthens – Ný spor]