Fastur liður
(Lag og texti: Bubbi Morthens)
Við sjónarhringinn hrannast upp dökk ský.
Ég sé dauðans stríðsbumbur berja,
ég heyri barnagrát og vopnagný
og fótatak þúsunda manna sem herja
á sannleikann og traðka hann niður,
í stríði er það fastur liður.
Ég sé fjölmiðla réttlæta lygina ljóta,
að frelsið krefjist fórn, þeir segja.
Klukkan tvö í beinni þeir fara svo að skjóta
og börnin klukkan átta byrja að deyja
og sannleikann þeir traðka niður,
í stríði er það fastur liður.
Ég sé ofursta mæta og mæra stríðstólin,
blóðvellinum fjarri og brosandi fagna
með fjögrastjörnuorðum og böðulsólin
hengir þá sem vilja ekki þagna.
Og sannleikann traðka þeir niður,
í stríði er það fastur liður.
Ég sé fallna stráka stirðnaða og kalda,
stjarfa í framan á svipinn hissa
eins og augnablikið þegar byssan falda
skaut kúlunni sem hjartað var dæmt til að kyssa,
sæju þeir sannleikann falla niður,
í stríði er það fastur liður.
Ég sé pólitíkusa á fjórum fótum skríða,
fylgispaka sem lúbarða rakka,
þeir dilla sinni rófu og herrunum hlýða,
fá að vera með, fyrir það skal jú þakka
og sannleikann snúa niður,
í stríði er það fastur liður.
[af plötunni Bubbi Morthens – 1000 kossa nótt]