Þúsund kossa nótt

Þúsund kossa nótt
(Lag og texti Bubbi Morthens)

Augun loga – læstar dyr.
Leggstu hjá mér sem áður fyrr.
Síminn sefur, allt er hljótt.
Ég veit þetta verður þúsund kossa nótt.

Opinn gluggi, ágústkvöld.
Við þurfum engin gluggatjöld.
Blóð mitt streymir hægt og hljótt.
Ég veit þetta verður þúsund kossa nótt.

Þröstur á grein situr og syngur,
sólina lofar meðan kötturinn slyngur
fikrar sig nær og nær.
Þá stund er lífið aðeins leikur.
Öfugt við fuglinn er ég ekkert smeykur.
Ást mín til þín er hrein og tær.

Augun vaka – opnar dyr.
Aðeins lengur liggja kyrr.
Dögun birtist hægt og hljótt.
Ég er að vakna eftir þúsund kossa nótt.
 
[af plötunni Bubbi Morthens – 1000 kossa nótt]