Mamma vinnur og vinnur
(Lag og texti: Bubbi Morthens)
Mamma mín hún vinnur og vinnur.
Vinur hennar heitir Finnur.
Ég á engan pabba,
hann fór út að labba
og hefur ekki sést síðan.
Það var þá sem mamma fann kvíðann.
Mamma mín hún sagði það
í símann um daginn.
Mamma vinnur og vinnur
og við gerum aldrei neitt.
Mamma mín hún vinnur og vinnur
og er alltaf svo þreytt.
Mín finnst gaman að lita og leira,
láta dúkkur bíla keyra.
Ég á að vera hljóð, þæg og góð.
Þurfa að tóra í þessum táradal,
hana mömmu gerir spinnegal.
Hvíslaði þegar hún sagði það
í simann um daginn.
Mamma vinnur og vinnur,
samt vantar alltaf aur.
Hún mamma vinnur og vinnur,
samt vantar alltaf aur.
[af plötunni Bubbi Morthens – 1000 kossa nótt]