Öruggt skjól
(Lag og texti: Bubbi Morthens)
Litli strákur með sorg í auga,
mamma hrekur burtu drauga
sem í draumi um dimmar nætur
vekja lítinn strák sem grætur,
fölur flýr í mömmu ból,
finnur þar sitt hlýja skjól.
Öruggt skjól,
allir þurfa öruggt skjól.
Litli strákur með blóðugt sárið,
mamma strýkur burtu tárið.
Kossinn gerir kraftaverk,
mamma er bæði mjúk og sterk.
Pabbi er góður en mamma er mest
af öllu sem er gott og gott er best.
Öruggt skjól,
allir þurfa öruggt skjól.
Litli strákur með sorg í auga.
Allir eiga sína drauga
sem hökta um á fúnum fótum
sem í æsku strax skutu rótum.
Þá er gott að eiga með ástinni ból
og eiga við hlið hennar öruggt skjól.
Öruggt skjól, allir þurfa öruggt skjól.
[af plötunni Bubbi Morthens – 1000 kossa nótt]