Vilmundur
(Lag og texti: Bubbi Morthens)
Viðlag
Ég veit það er erfitt,
ég veit það er sárt
að lifa og finna til.
Lífið er nakið og miskunnarlaust
hjá öllum þó rofar til.
Ég veit það er erfitt
að standa og brosa
svigna meir og meir.
Sum okkar eru gerð eins og bambus,
hin brotna eins og sykurreyr.
Viðlag
Flóttinn, já flóttinn
frá okkur sjálfum,
flóttinn frá okkar eigin dóm.
Engin þorir lengur að vera hann sjálfur
af hræðslu við almannaróm.
Viðlag
Það leggur enginn línuna,
leiðina réttu velur enginn nema þú
ef þú velur leiðina réttu
mun hún reynast þér erfiðust leiðin sú.
[af plötunni Bubbi Morthens – Ný spor]