Afmælisbörn 21. nóvember 2022

Bjarni Böðvarsson

Sjö afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar að þessu sinni:

Björk Guðmundsdóttir tónlistarkona er fimmtíu og sjö ára á þessum degi. Björk hefur fengist við tónlist frá barnsaldri, var þá í hljómsveitum eins og Jam ´80, Exodus og Draumsýn en síðar í sveitum eins og Tappa tíkarrassi, Kukli og Sykurmolunum. Útgáfuferill Bjarkar er einstakur en auk platna með hljómsveitum sínum hefur hún gefið út fjölda sólóplatna, þá fyrstu aðeins ellefu ára gömul en með fyrstu „alvöru“ plötunni, Debut, öðlaðist hún heimsfrægð og hefur síðan selt milljónir platna um heim allan. Björk hefur hlotið ógrynni viðurkenninga fyrir tónlistarsköpun sína.

Jónas Tómasson (yngri) tónskáld og tónlistarfrömuður frá Ísafirði er sjötíu og sex ára gamall í dag, hann starfaði á sínum yngri árum með Heimi Sindrasyni undir nafninu Heimir og Jónas, og gáfu þeir út plötur á sínum tíma en síðan þá hefur tónskáldið í honum fengið meira vægi.

Áskell Másson tónskáld og ásláttarleikari er sextíu og níu ára, framan af var hann þekktur fyrir ásláttarfærni sína og þá starfaði hann í hljómsveitum eins og Náttúru, Combói Þórðar Hall, Acropolis og síðar Rússíbönum. Síðar lagði Áskell áherslu á tónskáldahlutverk sitt og hafa verið gefnar út fjölmargar plötur með verkum eftir hann.

Margrét Örnólfsdóttir tónskáld og hljómborðsleikari er fimmtíu og fimm ára gömul í dag, Margrét hefur samið leikhúsa- og kvikmyndatónlist og verið áberandi í þeim geiranum en hún starfaði einnig í nokkrum þekktum hljómsveitum á sínum tíma, eins og Sykurmolunum og Risaeðlunni. Hún hefur sent frá sér sólóplötur með eigin efni.

Sigríður Thorlacius söngkona Hjaltalín á stórafmæli en hún er fertug í dag, hún er einnig með þekktari popp- og dægurlagasöngkonum síðustu ára og hefur m.a. sungið með Memfismafíunni og Heiðurspiltum, og hefur aukinheldur þótt aufúsugestur á plötum og tónleikum annarra listamanna.

Þórhallur Skúlason raftónlistarmaður og útgefandi er fjörutíu og sex ára gamall á þessum degi. Þórhallur hefur starfað og gefið út raftónlist einn síns liðs og ásamt öðrum undir ýmsum mismunandi nöfnum s.s. Sanasol, Disco invaders, Thor, Justin Simmons, Ajax, Bubbleflies, Oz artists og Coctail vomit. Hann hefur aukinheldur starfrækt Thule-útgáfuna og undirmerki hennar frá árinu 1995.

Einnig hefði Bjarni Böðvarsson harmonikkuleikari og hljómsveitastjóri átt afmæli þennan dag. Bjarni (fæddur 1900) sem iðulega var kallaður Bjarni Bö rak hljómsveitir undir eigin nafni um árabil, hann var einn af stofnendum FÍH og var um tíma formaður þess. Bjarni, sem var faðir Ragga Bjarna, lést árið 1955.

Vissir þú að engu mátti muna að Egill Ólafsson færi á sínum tíma í nám í flugvirkjun í Kanada?