
Elma Gíslason
Afmælisbörnin eru fimm á þessum degi:
Fyrsta skal nefna Maríu Baldursdóttur söngkonu, hárgreiðslumeistara og fyrrum fegurðardrottningu Íslands en hún er sjötíu og sex ára gömul í dag. María (sem er ekkja Rúnars Júlíussonar) hóf söngferil sinn með í Keflavík með Skuggum en söng síðar með Hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar, Bluebirds, Heiðursmönnum, Geimsteini, Áhöfninni á Halastjörnunni og Rokksveit Rúnars Júl. María hefur gefið út tvær sólóplötur og safnplötu að auki.
Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson bassaleikari er fjörutíu og sex ára á þessum degi, hann hefur leikið með fjöldanum öllum af þekktum hljómsveitum en þar má nefna Flís tríóið, Baggalút, Hjálma, Memfísmafíuna, Hummus og Senuþjófana svo einhverjar séu nefndar en einnig hefur Valdimar leikið með óteljandi djasskvartettum. Hann hefur ennfremur leikið á plötum óteljandi listamanna.
Sauðkræklingurinn Helgi Sæmundur Guðmundsson er þrjátíu og sex ára gamall á þessum degi. Helgi Sæmundur vakti fyrst athygli þegar hann sigraði Rímnaflæði 2002 undir nafninu Evilmind og svo þegar hann sigraði Músíktilraunir nokkrum árum síðar með hljómsveitinni Bróðir Svartúlfs, síðan þá hefur hann verið þekktur sem annar helmingur dúóanna Úlfur Úlfur og SXSXSX en hann hefur einnig verið í samstarfi við fjölda annarra tónlistarmanna.
Sturla Már Jónsson gítarleikari og söngvari fagnar sjötíu og sex ára afmæli sínu í dag. Sturlu Má þekkja margir úr hljómsveitum eins og Pónik og Sóló en hann hefur einnig starfað með sveitum eins og Skuggum og Garðari og Stuðbandinu svo önnur dæmi séu nefnd.
Elma (Ingibjorg) Gíslason (1910-87) tónlistarfrömuður meðal Vestur-Íslendinga í Winnipeg hefði einnig átt afmæli á þessum degi. Hún stjórnaði kórum Vestur-Íslendinga, samdi tónlist, söng einnig sjálf og var sólóisti Sambandskirkjunnar í Winnipeg. Elma lauk háskólaprófum í tónlistarfræðum, söng og söngmennt.
Vissir þú að daginn sem Villi Vill útskrifaðist sem stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri gekk hann til liðs við hljómsveit Ingimars Eydal?