Berrössuð á tánum
(Lag og texti: Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson)
Sumarið er komið, sælt og blítt:
við sitjum hér úti á túni.
Fuglarnir kvaka og flest er nýtt
og fáni er dreginn að húni.
Við erum berrössuð, berrössuð,
berrössuð á tánum
hópur af kátum krökkum
sem kunna‘ að leika sér.
Lækurinn streymir um laut og mel
og liðast svo niður að ánni.
Við skríðum á bakkanum, skoðum allt vel
og skrifum í drullu með tánni.
Við erum berrössuð…
Margt er nú skrítið og moldin blaut
er mjúk eins og deig í pakka.
Nú baka ég köku og bý til graut
og býð þér svo kannski að smakka.
Við erum berrössuð…
Á Íslandi höfuð við okkar lag
og allir syngja hér saman.
Það veltur á ýmsu hvern virkan dag
að verði nú framvegis gaman.
Við erum berrössuð…
[af plötunni Anna Pálína og Aðalsteinn Ásberg – Berrössuð á tánum]














































