Friðarjól

Friðarjól
(Lag / texti: erlent lag / Ingólfur Jónsson frá Prestbakka)

Friður, friður frelsarans
finni leið til sérhvers manns.
Yfir höf og yfir lönd,
almáttug nær Drottins hönd.
Hans er lífið, hans er sól,
hann á okkar björtu jól.

viðlag
Börn við erum börnin smá,
börn sem Drottinn vakti hjá.
Börn við erum börnin smá,
börn sem Drottinn vakti hjá.

Friður, friður fögur jól
frelsarinn er vörn og skjól.
Verum örugg, verum trú,
verðum glöð á jólum nú.
Veitum öðrum von og yl,
vermum allt sem finnur til.

viðlag

Friður sé um fold og haf,
friðarboðskap Jesú gaf.
Fátækur hann fæddur var,
faðir ljóssins þó hann var.
Ljóssins faðir, ljós þín skær,
lýsi öllum nær og fjær.

[af plötunni Pálmi Gunnarsson og Sigurður Helgi Pálmason – Friðarjól]