Hann Tumi fer á fætur
(Lag / texti: Mozart / Freysteinn Gunnarsson)
Hann Tumi fer á fætur
við fyrsta hanagal
að sitja yfir ánum
lengst inni í Fagradal.
Og hann lætur hugann líða
svo langt um dali og fjöll
því kóngur vill hann verða
í voða stórri höll.
Og Snati hans er hirðfífl
og hrútur ráðgjafinn
og smalahóll er höllin
en hvar er drottningin?
[m.a. á plötunni Einu sinni var: Vísur úr Vísnabókinni]














































