Játning
(Lag / texti: Sigfús Halldórsson / Tómas Guðmundsson)
Enn birtist mér í draumi sem dýrlegt ævintýr
hver dagur sem ég lifði í návist þinni.
Svo morgunbjört og fögur í mínum huga býr
hver minning um vor sumarstuttu kynni.
Og ástarljóð til þín verður ævikveðja mín
er innan stundar lýkur göngu minni.
Þá birtist mér í draumi sem dýrlegt ævintýr
hver dagur sem ég lifði í návist þinni.
[m.a. á plötunni Egill Ólafsson & Guðrún Gunnarsdóttir – Fagra veröld]














































