Kátir dagar
(Lag / texti: erlent þjóðlag / Jenni Jónsson)
Kátir dagar koma og fara, koma og fara,
hvað er það að lifa og spara, lifa og spara,
dátt við syngjum dönsum nætur, dönsum nætur,
dröttumst oftast seint á fætur, seint á fætur.
Vífin ungu vefjum örmum, vefjum örmum,
villumst stundum gleymum hörmum, gleymum hörmum.
Oft um nætur ástin brennur, ástin brennur,
öll á burt er dagur rennur, dagur rennur.
Þannig áfram áfram áfram ævin líður
undur fljótt og tíminn aldrei bíður bíður,
svífa í draumi svanni og halur fríður,
syngja og dansa og tra la la la la.
[m.a. á plötunni Hljómsveit Finns Eydal – Kátir dagar]














































