Nótt í Moskvu*
(Lag / texti: erlent lag / Jónas Árnason)
Eitt sinn einn ég gekk yfir Rauðatorg
og mér fylgdi undarleg sorg.
Ég var ungur þá, haldinn ungri þrá.
Það var maíkvöld í Moskvuborg.
Seinna sat ég einn grænum garði í,
fuglar sungu dirrindídí.
Ég var ungur þá, haldinn ungri þrá.
Það var maíkvöld í Moskvuborg.
Allt í einu ég unga stúlku sá
sem stóð þar og starði mig á
bak við rósarunn, með sinn rósamunn.
Það var maíkvöld í Moskvuborg.
[m.a. á plötunni Tríó Björn Thoroddsen og Andrea Gylfadóttir – Vorvindar]
* lagið er stundum nefnt Kvöld í Moskvu














































