Stóra brúin

Stóra brúin (Lag / texti: höfundur ókunnur) Stóra brúin fer upp og niður, upp og niður, upp og niður. Stóra brúin fer upp og niður allan daginn. Bílarnir aka yfir brúna, yfir brúna, yfir brúna. Bílarnir aka yfir brúna allan daginn. Skipin sigla undir brúna, undir brúna, undir brúna. Skipin sigla undir brúna allan daginn.…

Sól, sól skín á mig

Sól sól skín á mig (Lag / texti: erlent lag / Magnús Pétursson og Sveinbjörn Einarsson) viðlag Sól, sól skín á mig, ský, ský burt með þig. Gott er í sólinni að gleðja sig, sól sól skín á mig. Sólin er risin, sumar í blænum, sveitirnar klæðast nú feldinum grænum. Ómar allt lífið af ylríkum…

Súrmjólk í hádeginu

Súrmjólk í hádeginu (Lag / texti: Bjartmar Guðlaugsson) Ég er bara fimm ára og kenna á því fæ, klukkan sjö á morgnana er mér dröslað niður’ í bæ. Enginn tekur eftir því þó heyrist lítið kvein því mamma er að vinna en er orðin alltof sein. viðlag Súrmjólk í hádeginu, Cheerios á kvöldin, mér er…

Sex litlar endur

Sex litlar endur (Lag / texti: höfundur ókunnur) Sex litlar endur þekki ég, fimm eru mjóar og ein er sver. Ein þeirra vappar og sperrir stél, fremst í flokki’ og segir gvagg gvagg gvagg. Niður að sjónum vilja þær vabba vibbe vabba vibbe vabba til og frá Ein þeirrar vappar og sperrir stél fremst í…

Sætur ilmur

Sætur ilmur (Lag / texti: Rúnar Þór Pétursson / Heimir Már Pétursson) Nóttin klæðist svörtu satín, sætur ilmur af blómum skornum, endalaus gleði haugar af glingri, glymjandi hlátur úr öllum hornum. Hraði, hraði, hjartasviði, klippimyndir í litum, gleði, gleði, blóð og sviti, slökkt á öllum vitum. Stífuð bros í fínum fötum, fálma eftir lífi í…

Siesta

Siesta (Lag / texti: Rúnar Þór Pétursson / Steinn Steinarr [Aðalsteinn Kristmundsson] Í dagsins önnum dreymdi mig þinn djúpa frið, og svo varð nótt. Ég sagði í hljóði: Sofðu rótt, þeim svefni enginn rænir þig. En samt var nafn þitt nálægt mér og nóttin full af söngvaklið, svo oft, og þetta auða svið bar ætíð…

Sýnir

Sýnir (Lag / texti Rúnar Þór Pétursson / Steinn Steinarr) Ég sit og hlusta hljóður á húmsins dularmál. Sýnir og draumar frá horfnum heim, hópast að minni sál. Mér birtist aftur æskan sem ól minn kjark og þrótt. Á bak við tímans dökka djúp, dveljum við saman í nótt. Og löngu dánir draumar í dýrð…

Sigurlagið

Sigurlagið (Lag / texti: Gildran / Þórir Kristinsson) Við sjáum einn sigur enn. Þar vinna víst okkar menn. Við höfum allt og meira til. Fjandann í salt, okkur í vil. Við burstum þá og beygjum vel. Þeir endi fá og þegja í hel. [á plötunni Gildran – Huldumenn]

Ryksugan á fullu

Ryksugan á fullu (Lag / texti: Ólafur Haukur Símonarson) Ryksugan á fullu, étur alla drullu, tra la la la la la la la la la la lamm. Sópa burtu rykið með kústi’ og gömlu priki, tra la la la la la la la la la la lamm. Og ef þú getur ekki sungið reyndu þá…

Róninn

Róninn (Lag / texti: Magnús Eiríksson) Undir gömlum árabát er næturstaður manns. Kassi merktur Tuborg öli er eina mublan hans. Hann stundar ekki vinnu, bara betlar lítið eitt, í bláleitt glas af kogara er hverri krónu eytt. Fátt eitt skiptir máli utan þetta eitt. Allt sem heitir alkóhól er betra en ekki neitt. Fólki sem…

Reyndu aftur

Reyndu aftur (Lag / texti: Magnús Eiríksson) Þú reyndir allt, til þess að ræða við mig í gegnum tíðina, ég hlustaði ekki á þig. Ég gekk áfram minn veg, niður til heljar hérumbil. Reyndu aftur, ég bæði sé og veit og skil. Nú hvert sem er skal ég fylgja þér, yfir Esjuna til tunglsins trúðu…

Reykjavíkurblús

Reykjavíkurblús (Lag / texti: Magnús Eiríksson) Bílarnir æða um göturnar, alls staðar ös. Í miðbænum mannlífið iðar og þéttist í kös. Breiðrassa lögregluþjónarnir þeytandi flautur, hver hugsar um sig. Ég sit hér á torginu miðju og hugsa um þig. Í draum mínum dvelurðu hvar sem ég þvælist og fer, ég get ekki losað minn huga…

Rennur sól

Rennur sól (Lag / texti: erlent lag / höfundur ókunnur) Rennur sól við hafsbrún á Raufarhöfn, roða slær á granda og sker. Sigla sjómenn inn með síld af kaldri dröfn. Það slær roða á Raufarhöfn. Heimurinn á til bæði harm og grín, hjúfraðu þig betur að mér. Þessi síld og salt er aðeins sút án…

Rómeó og Júlía

Rómeó og Júlía (Lag / texti: Bubbi Morthens) Uppi í risinu sérðu lítið ljós, heit hjörtu, fölnuð rós. Matarleifar, bogin skeið, undan oddinum samviskan sveið. Þau trúðu á drauma, myrkrið svalt, draumarnir tilbáðu þau. Fingurnir gældu við stálið kalt, lífsvökvann dælan saug. Draumarnir langir runnu í eitt, dofin þau fylgdu með. Sprautan var lífið, með…

Róbert bangsi

Róbert bangsi (Lag / texti: erlent lag / Böðvar Guðmundsson) Hvert sem ég í langferð legg leiðast börnum aldrei hjá mér. Þau elta mig er ég glaður geng um gulan trefil um hálsinn á mér. viðlag Róbert, Róbert minn, Róbert góði bangsi, halló. Fáum við svo fín og þæg að fylgjast með þér á hnotskóg.…

Royi Rogers

Royi Rogers (Lag / texti: erlent lag / Haraldur Sigurðsson og Þórhallur Sigurðsson) Ég fór á kábojamynd í gær, spennan var gífurleg, ég varð ær. Af spennu‘ og hrifningu‘ allur salurinn þagði, þegar aðal í myndinni kom inn og sagði: „Ég er Roy Rogers, ég er sætur og klár, hef verið í þessum bransa í…

Ronja ræningjadóttir

Ronja ræningjadóttir (Lag / texti: erlent lag / Böðvar Guðmundsson) Ronja ræningjadóttir, ræningjakóngsins dóttir, hver er hún? já, hver er hún? Laus við sorg og sóttir, Lovísu og Matthíasardóttir. Ronja ræningjadóttir, ræningjakóngsins dóttir, hvar býr hún? já hvar býr hún? Má því enginn gleyma í Matthíasarborg á Ronja heima. Eðlilegt að lýði öllum líki, loksins…

Romm og Kókakóla

Romm og Kókakóla (Lag / texti: erlent lag / Jónas Friðrik Guðnason) Íslendingar æðsta þrá er að hlaupast kulda frá út í suðræn sólarlönd og setjast að á hlýrri strönd. Súpa romm og Kókakóla, kætast og spangóla, hörund sitt hraðsteikja. Heilsufarið stöðugt veikja. Ýmsa vonda veiki fá, varla þó í lækni ná, hversu margt sem…

Ríðum heim til Hóla

Ríðum heim til Hóla (Lag / texti: erlent lag / Guðmundur Guðmundsson) Ríðum heim til Hóla. Pabba kné er klárinn minn, kistill mömmu fákur þinn. Ríðum heim til Hóla. Ríðum heim að Ási. Ef við höfum hraðann á, háttum þar við skulum ná. Ríðum heim að Ási. Ríðum heim að Hofi. Senn er himni sólin…

Pálína

Pálína (Lag / texti: sænskt þjóðlag / Gunnar Ásgeirsson og Sveinn Björnsson) Það var einu sinni kerling og hún hét Pálína, Pálína-na-na, Pála-Pála-Pálína. Það eina sem hún átti var saumamaskína, maskína-na-na, sauma-saumamaskína. Og kerlingin var lofuð og hann hét Jósafat, Jósafat-fat-fat, Jósa-Jósa-Jósafat. Og hann var voða heimskur en hún var apparat, apparat-rat-rat, appa-appa-apparat. Og karlinn…

Palli var einn í heiminum

Palli var einn í heiminum (Lag / texti: höfundur ókunnur) Ég þekki lítinn labbakút sem langaði til að stelast út. Á litlu tánum læddist einn og langaði ekki að vekja neinn. Ha ha ha trúðu mér, Palli var einn í heimi hér. Ha ha ha trúðu mér, Palli var einn í heimi hér. Út á…

Pabbi komdu heim um jólin

Pabbi, komdu heim um jólin (Lag / texti: erlent lag / Ólafur Gaukur Þórhallsson) Ó, pabbi komdu heim um jólin, lagið sendir litla stúlkan þín. Ó, pabbi komdu heim um jólin, sigldu beina leið til mömmu og mín. Þú ert alltaf úti á sjó að vinna, ég og mamma kaupum jólagjöf. Viltu ekki vinna aðeins…

Prestsvísur

Prestsvísur (Lag / texti: þjóðlag / þjóðvísa) Það er kominn gestur, segir prestur. Það er kominn gestur, segir prestur. Taktu’ann á bakið og berð’ann inn, segir prestsins kona. Takt’ann á bakið og berðu’ann inn, segir prestsins kona. Hvar á hann að sitja? segir prestur. Hvar á hann að sitja? segir prestur. Í einum stól við…

Pípan

Pípan (Lag / texti: Hafsteinn Guðfinnsson / Ragnar Ingi Aðalsteinsson) Ég sá hana fyrst á æskuárum, ósnortin var hún þá. Hún fyllti loftið af angan og ilmi, æsandi‘ af losta og þrá. Síðla á kvöldin við fórum í felur, mér fannst þetta svolítið ljótt. En alltaf varð þetta meiri og meiri unaður hverja nóttt. Ég…

Piparkökusöngurinn

Piparkökusöngurinn (Lag / texti: erlent lag / Kristján frá Djúpalæk) Þegar piparkökur bakast, kökugerðarmaður tekur fyrst af öllu steikarpottinn og eitt kíló margarín. Bræðir yfir eldi smjörið en það næsta sem hann gjörir er að hræra kíló sykurs  saman við það heillin mín. Þegar öllu þessu er lokið hellast átta eggjarauður saman við og kíló…

Pálína með prikið

Pálína með prikið (Lag / texti: norskt þjóðlag / Guðmundur Daníelsson) Pálína með prikið, potar sér gegnum rykið, rogast hún með rjóma, rembist hún með smjör. Þetta verður veisla, vítamín og fjör. Pálína með prikið, Pálína með prikið. Pálína með pakkann, pjakkar heim allan bakkann. Vertu ekki vond þótt vísan sé um þig, Pálína með…

Pass

Pass (Lag / texti: Gildran / Þórir Kristinsson) Þú sérð sólu síga, syndum vafða drauma. Drukkna fullum lyga, deyja veröld auma. Friður skiptir máli, stríðið er ei sjálfsagt. Reynum þessu að breyta, sýnum það í verki. Hatrið hrími kalda, hellist yfir heima. Vondar sálir valda, voninni þeir gleyma. [á plötunni Gildran – Huldumenn]

Óskasteinar

Óskasteinar (Lag / texti: erlent lag / Hildigunnur Halldórsdóttir) Fann ég á fjalli fallega steina, faldi þá alla, vildi þeim leyna. Huldi þar í hellisskúta heillasteina, alla mína unaðslega óskasteina. Langt er nú síðan leit ég þá steina, lengur ei man ég óskina neina er þeir skyldu uppfylla um ævidaga, ekki frá því skýrir þessi…

Óralangt í burtu

Óralangt í burtu (Lag / texti Magnús Eiríksson) Flest sem þú ert það erfðist öðrum frá, forlög þín, það muntu sjá. Og öll þau svör sem við fengum öðrum frá, svör sem þú notar hér og nú. Áfram látlaust tíminn frá þér æðir yfir fjöll og eyðisand, þar til líf að lokum frá þér flæðir…

Ómissandi fólk

Ómissandi fólk (Lag / texti: Magnús Eiríksson) Allsnakinn kemurðu í heiminn og allsnakinn ferðu burt frá þessum steindauðu hlutum sem þér fannst þú hafa dregið á þurrt. Og eftir lífsins vegi, maður fer það sem fært er. En veistu á miðjum degi dauðinn tekur mál af þér. Ofmetnastu ekki af lífsins móðurmjólk. Í kirkjugörðum heimsins…

Ó þá náð að eiga Jesú

Ó þá náð að eiga Jesú (Lag / texti: erlendur sálmur / Matthías Jochumsson) Ó, þá náð að eiga Jesú, einkavin í hverri þraut. Ó, þá heill að halla mega höfði sínu í Drottins skaut. Ó, það slys því hnossi’ að hafna, hvílíkt fár á þinni braut, ef þú blindur vilt ei varpa von og…

Ó, nema ég

Ó, nema ég (Lag / texti: erlent lag / Jón Sigurðsson) Oft á vorin haldin eru héraðsmót, í hópum sækja þangað bæði sveinn og snót og allir skemmta sér á einhvern veg. Ó, nema ég. Þeir eiga allir kærustur sem kyssa þá og klappa þeim í lautum svona til og frá og brosin frá þeim…

Ó, María mig langar heim

Ó, María mig langar heim (Lag / texti: erlent lag / Ólafur Gaukur Þórhallsson) Hann sigldi út um höfin blá í sautján ár og sjómennsku kunni hann upp á hár. Hann saknaði alla tíð stúlkunnar og mynd hennar stöðugt í hjarta hann bar. viðlag Ó, María mig langar heim, ó, María mig langar heim því…

Ó, mamma, gef mér rós í hárið á mér

Ó, mamma, gef mér rós í hárið á mér (Lag / texti: höfundur ókunnur) Ó, mamma, gef mér rós í hárið á mér því tveir litlir strákar eru skotnir í mér. Annar er blindur en hinn ekkert sér. Ó, mamma gef mér rós í hárið á mér. Þegiðu stelpa, þú færð enga rós, farðu heldur…

Ó, Jósep, Jósep

Ó, Jósep, Jósep (Lag / texti: erlent lag / Skafti Sigþórsson) Ó, Jósep, Jósep, bágt á ég að bíða og bráðum hvarma mína fylla tár, því fyrr en varir æskuárin líða og ellin kemur með sín gráu hár. Ég spyr þig, Jósep, hvar er karlmannslundin og kjarkur sá er prýðir hraustan mann? Hvenær má ég…

Ó Jesúbarn

Ó Jesúbarn (Lag / texti: höfunudur ókunnur / Jakob Jóhannesson Smári) Ó Jesúbarn þú kemur nú í nótt, og nálægð þína ég í hjarta finn. Þú kemur enn, þú kemur undra hljótt í kotin jafnt og hallir fer þú inn. Þú kemur enn til þjáðra’ í heimi hér með huggun kærleiks þíns og æðsta von.…

Ó, Gunna

Ó, Gunna (Lag / texti: erlent lag / Jónas Friðrik Guðnason) Ó, Gunna, elsku Gunna mín, alveg eins og tunna, svo æðislega fín. Ég ann þér, aftur fyrir rass, þú ert mitt eina æðislega hlass. viðlag Vina, það er engin, engin önnur æðisleg sem þú, augun þín minna á augu í grárri kú. Það er…

Ó, borg mín borg

Ó, borg mín borg (Lag / texti: Haukur Morthens / Vilhjálmur frá Skáholti) Ó, borg mín, borg, ég lofa ljóst þín stræti, þín lágu hús og allt, sem fyrir ber. Og þótt svo tárið oft minn vanga væti, er von mín einatt, einatt bundin þér. Og hversu, sem að aðrir í þig narta, þig eðla…

Óli Jó

Óli Jó (Lag / texti: erlent lag / Jónas Friðrik Guðnason) Óli Jó, í myrkri lýsir leið. Óli Jó, í gegnum ótta og neyð. Óli Jó, um æðar straum fær sent og þjóðarsál syngur vegna hans. Ó, Óli Jó. O, ó, Óli Jó, fær sekt í sælu breytt, ó, ó, Óli Jó og án hans…

Ólafur liljurós

Ólafur liljurós (Lag / texti: þjóðlag / þjóðvísa) Ólafur reið með björgum fram, villir hann, stillir hann. Hitti hann fyrir sér álfarann. Þar rauður loginn brann. viðlag Blíðan lagði byrinn undan björgunum. Blíðan lagði byrinn undan björgunum fram. Þar kom út ein álfamær, villir hann, stillir hann.. Sú var ekki Kristi kær. Þar rauður loginn…

Ólafía, hvar er Vigga?

Ólafía, hvar er Vigga? (Lag / texti: höfundur ókunnur) Ólafía, hvar er Vigga? Ólafía, hvar er Vigga? Hún er uppi í sveit að elta gamla geit. Ólafía, hvar er Vigga? [á plötunni Alfreð Clausen og Sigrún Ragnarsdóttir – Hvað er svo glatt…]

Óður

Óður (Lag / texti: Sálin hans Jóns míns / Guðmundur Jónsson) (Þú ert snotur stelpa) (Þú ert snotur stelpa) (Byltu mér í nótt) Augun þín lostafull æpa á mig er tunga þín líður um varirnar. Stífur og stinnur ég horfi á þig er tínir þú burt af þér spjarirnar. Skuggarnir leika um skapahár er fullkominn…

Óbyggðirnar kalla

Óbyggðirnar kalla (Lag / texti: Magnús Eiríksson)   Hoppa kátur út um dyrnar, við blasir heimurinn, himinblár er bláminn, himneskur jökullinn.   Óbyggðirnar kalla og ég verð að gegna þeim. Ég veit ekki hvort eða hvernig eða hvenær ég kemst heim.   Með bergmál óbyggðanna svo bjart í höfði mér, leiður á öllu og öllum,…

Ó þú

Ó þú (Lag / texti: Magnús Eiríksson) Ó þú, engin elskar eins og þú, engin brosir líkt og þú, engin grætur líkt og þú. Ó þú ert sú eina sem ég elska nú, fjarri þér hvar sem ég er ég þrái að vera nærri þér. Dagurinn líður mig dreymir um daginn er kynntumst við fyrst,…

Orginal

Orginal (Lag / texti: Guðmundur Jónsson / Friðrik Sturluson) Það er ekki nóg að hafa sannanir, staðreyndir. Þó þú þykist vita um hvað málið snýst fyrir víst það er allt á huldu hér og í raun og veru er ekkert svar að fá nema þetta hér. viðlag Ég er bara ég, þú ert bara þú,…

Okkar nótt

Okkar nótt (Lag / texti: Guðmundur Jónsson / Stefán Hilmarsson) Það er komið kvöld. Kertið er að klárast, virðist mér. Ég er ennþá hér. Liggðu áfram, losaðu’ um, lygndu aftur augunum. Ekkert liggur á. Úti er fönnin köld, frostið allt og dimmur desember. Ég er ennþá hér. Húsið sefur, himnaljós varpa bjarma’ á blómarós. Ekkert…

Og ég trúi því

Og ég trúi því (Lag / texti: erlent lag / Jónas Friðrik Guðnason) viðlag Og ég trúi því, og ég trúi því. Ég hef trúað áður og ég trúi á ný. Því má finna stað fyrst þeir segja það. Ég er fólkið og ég trúi því. Í stofnun hringdi ég heilu vikuna og ég hélt…

Oft spurði ég mömmu

Oft spurði ég mömmu (Lag / texti: erlent lag / Loftur Guðmundsson) Oft spurði ég mömmu er ung ég var: „Sér enginn fyrir hvað verða kann? Hlotnast mér fegurð, auðlegð og ást?“ Aðeins hún svara vann: „Que sera sera, það verður og fer sem fer. Hið ókomna enginn sér. Que sera, sera verður og fer…

Of góð

Of góð (Lag / texti: Guðmundur Jónsson / Friðrik Sturluson) Lífið kemur við kaunin, kremur næmgeðja sál. Alltaf önnur er raunin, enginn skilur þitt hjartans mál. Tilfinningin um tíma tekur af þér öll völd. Hún er hættuleg víma og hún hefur alltaf betur. Hún er of góð. Hún er of sleip/slæg. Hún er of góð,…

Nú er gaman

Nú er gaman (Lag / texti: erlent lag / Árni Sigurðsson) Ég held ég elski Stínu, samt er ég ekki viss því aðra fallegri ég sá í gær. Ég rúnta nú um bæinn og vonast hana að sjá og viti menn, brátt situr hún mér hjá. viðlag O – nú er gaman, kærastan og ég…