Okkar nótt

Okkar nótt
(Lag / texti: Guðmundur Jónsson / Stefán Hilmarsson)

Það er komið kvöld.
Kertið er að klárast, virðist mér.
Ég er ennþá hér.
Liggðu áfram, losaðu’ um, lygndu aftur augunum.
Ekkert liggur á.

Úti er fönnin köld,
frostið allt og dimmur desember.
Ég er ennþá hér.
Húsið sefur, himnaljós varpa bjarma’ á blómarós.
Ekkert liggur á.

Þetta’ er okkar nótt og okkar einu líf.
Ég vil njóta hverrar mínútu með þér.
Ég vil hvísla nafnið þitt og hvíla hér.
Sérhvert andartak er eilífð fyrir mér.
Útilokum allt – alein.

Það er eins og allt
einhvern veginn hefjist hér og nú.
Ástæðan ert þú.
Legðu hönd í lófa minn, langt í burtu’ er dagurinn.
Ekkert liggur á.

Þetta’ er okkar nótt og okkar einu líf.
Ég vil njóta hverrar mínútu með þér.
Ég vil hvísla nafnið þitt og hvíla hér.
Sérhvert andartak er eilífð fyrir mér.
Og ég hugsa ekki’ um annað eins og er.
Ég vil njóta hverrar mínútu með þér.
Ég vil hvísla nafnið þitt og hvíla hér.
Sérhvert andartak er eilífð fyrir mér.
Útilokum allt -.við ein.

[m.a. á plötunni Sálin hans Jóns míns – 12. ágúst ‘99]