Orginal

Orginal
(Lag / texti: Guðmundur Jónsson / Friðrik Sturluson)

Það er ekki nóg að hafa sannanir, staðreyndir.
Þó þú þykist vita um hvað málið snýst fyrir víst
það er allt á huldu hér og í raun og veru er
ekkert svar að fá nema þetta hér.

viðlag
Ég er bara ég, þú ert bara þú,
ég er bara mynd,
ég er spegilmynd af þér, ég veit ekki hver ég er.
Hver er orginal?

Ég get ekki fundið neina ástæðu, skýringu.
Kannski eru þetta bara ofsjónir, vísindi.
Þú skalt ekki trúa mér. Það má rækta hvað sem er,
nýja líkama, þúsund manna her.

viðlag

[m.a. á plötunni Sálin hans Jóns míns – Hér er draumurinn]