Þorgísl (1991 / 1993)

Þórgísl

Hljómsveitin Þorgísl var verkefni í kringum útgáfu plötu Gísla Helgasonar – Heimur handa þér, sem hann sendi frá sér haustið 1991.

Þorgísl var notuð til kynningar á plötunni og lék sveitin m.a. í Norræna húsinu en meðlimir hennar voru Herdís Hallvarðsdóttir bassaleikari, Þórir Baldursson hljómborðsleikari, Tryggvi Hübner gítarleikari og Pétur Grétarsson trommuleikari auk Gísla, sem líkast til lék á hin ýmsu hljóðfæri. Eyjólfur Kristinsson og Anna Pálína Árnadóttir sáu um sönginn.

Sveitin kom aftur fram á sjónarsviðið vorið 1993 en þá voru í henni Gísli, Þórir, Pétur, Eyjólfur (sem nú lék einnig á gítar) og Haraldur Þorsteinsson bassaleikari, þeir félagar léku þá á tónleikum á Hvammstanga.