Veitingahúsið Naustið við Vesturgötu bauð lengi vel upp á lifandi tónlist fyrir gesti sína og á árunum 1954-70 hafði Naust-tríóið annast þann tónlistarflutning undir stjórn Carls Billich. Frá 1969 til 1980 var hins vegar Tríó Nausts auglýst í blöðum samtímans sem hljómsveit hússins og er þar er um aðra sveit að ræða.
Upplýsingar um þessa sveit eru afar takmarkaðar og litlar upplýsingar finnast um meðlimi hennar eða hljóðfæraskipan, hvort um var að ræða mörg mismunandi tríó undir sama heitinu eða hvort það starfaði samfleytt. Heimildir eru um að Árni Ísleifsson píanóleikari hafi leikið þar á árunum 1969 til 72 að minnsta kosti, og þá spilaði Njáll Sigurjónsson bassaleikari [?] með honum, einnig liggur fyrir að tvær söngkonur sungu með Tríói Naustsins á sínum tíma, Helga Sigþórsdóttir og Erla Traustadóttir auk þess sem einsöngvarar komu stundum fram á svokölluðum einsöngvarakvöldum – hér má nefna Magnús Jónsson, Kristin Hallsson og Guðmund Jónsson en þeir voru augljóslega ekki hluti af tríóinu.
Allar frekari upplýsingar um Tríó Nausts óskast sendar Glatkistunni.














































