Nú er lokakeppni Eurovision 2015 í Austurríki á næsta leiti og því er ekki úr vegi að kanna hug lesenda um það hvernig íslenska laginu muni ganga.
Íslenska lagið, Unbroken í flutningi Maríu Ólafsdóttur og Stop Wait Go, tekur þátt í síðari undankeppninni sem fram fer á fimmtudagskvöldið, fyrri undankeppnin fer hins vegar fram á þriðjudagskvöldið. Laugardagskvöldið er svo aðalkvöldið en þá fara úrslitin fram, og vonandi verður íslenska framlagið meðal þeirra.
En í hvaða sæti skyldi lagið enda?














































