Vetrarstarfið er nú að hefjast í áttunda sinn hjá Blúsfélagi Reykjavíkur. Blúskvöldin verða fyrsta mánudaginn í hverjum mánuði á Rósenberg. Fyrsta blúskvöldið verður mánudagskvöldið 5. október nk. klukkan 21:00.
Björgvin Gíslason gítarleikari og hljómsveit, Ásgeir Óskarsson trommuleikari, Haraldur Þorsteinsson bassaleikari, Sigurður Sigurðsson söngvari og munnhörpuleikari, Jens Hanson saxófónleikari og Tómas Jónsson hljómborðsleikari gera allt vitlaust .
Bjöggi Gísla hefur í áratugi mundað gítarinn með vinsælum hljómsveitum, listamönnum og sem sólólistamaður. Björgvin er talinn með betri gítarleikurum sem Ísland hefur alið af sér og hefur blúsinn verið fyrirferðamikill á ferlinum.
Mætum öll á blúskvöldin okkar og tökum einhvern með sem hefur ekki komið áður.














































