Í dag 9. október munu 12 tónar gefa út fyrstu sólóskífu Mr. Sillu. Platan var unnin árið 2014 í Reykjavík og London með hjálp Mike Lindsay.
Mr. Silla, eða Sigurlaug Gísladóttir, ætti að vera íslenskum tónlistarunnendum kunn, hún sigraði söngkeppni framhaldsskólanna 2004 ásamt Sunnu Ingólfsdóttur en síðan hefur hún verið meðlimur í hljómsveitunum múm og Snorri Helgason um áraraðir ásamt því að hafa starfað um lengri eða skemmri tíma með mörgum öðrum hljómsveitum.
Nýverið gaf Mr. Silla frá sér myndband við lagið Breathe sem er að finna á plötunni. Myndbandið var unnið í samstarfi við leikstjórann Þóru Hilmarsdóttur og gefur það innsýn í dimman en fagran hljóðheim plötunnar.
Hér má sjá myndbandið https://www.youtube.com/watch?v=iJJUASmRfAE














































