
Trausti Thorberg
Fjögur tónlistartengd afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar á þessum degi:
Elst afmælisbarna dagsins er Trausti Thorberg Óskarsson gítarleikari en hann er áttatíu og átta ára gamall. Trausti lék með ýmsum danshljómsveitum á árum áður, s.s. Krummakvartettnum, Neistum og hljómsveitum Eyþórs Þorlákssonar, Carls Billich og Þóris Jónssonar, auk KK-sextetts en hann var einn af stofnmeðlimum þeirrar sveitar. Trausti starfrækti ennfremur eigin sveit um tíma.
Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari er fimmtíu og eins árs gömul í dag, hún er með fremstu sellóleikurum landsins og hefur þrátt fyrir klassískan bakgrunn starfað jafnt með klassíska geira tónlistarinnar á Íslandi og þeim poppaðri. Hún hefur leikið inn á fjölmargar plötur í gegnum tíðina, beggja megin línunnar milli klassíkur og léttari tónlistar. Hún hefur einnig gefið út sínar eigin.
Þá er Þorbjörg Daphne Hall sellóleikari þrjátíu og eins árs, hún hefur gert garðinn frægan með Hjaltalín en hefur einnig leikið með Drýas. Sellóleik hennar má einnig heyra á plötum annarra flytjenda s.s. Fræ og Bubba Morthens svo dæmi séu nefnd.
Elsa Sigfúss söngkona (f. 1908) átti einnig afmæli þennan dag. Elsa var altsöngkona en hafði einnig lært á selló og píanó, hún starfaði allan sinn feril í Danmörku og er sá Íslendingar sem hefur sungið inn á flestar plötur, á annað hundrað talsins. Elsa lést 1979.