Afmælisbörn 31. desember 2015

Gísli Þór Gunnarsson G.G. Gunn

Gísli Þór Gunnarsson

Á þessum síðasta degi ársins er aðeins eitt afmælisbarn á skrá Glatkistunnar:

Gísli Þór Gunnarsson (G.G. Gunn) trúbador og sálfræðingur er fimmtíu og sjö ára gamall í dag, Gísli er ef til vill ekki meðal þekktustu tónlistarmanna Íslands en eftir hann liggja þó þrjár plötur. Gísli starfaði um tíma sem dagskrárgerðarmaður í útvarpi en hefur lítið sinnt tónlistinni síðustu tvo áratugi.