Blústríóið Persona var skammlíft band, stofnað í árslok 1967 og starfaði fram á sumar 1968.
Eftir því sem heimildir segja voru meðlimir Personu Axel Einarsson bassaleikari, Finnur Torfi Stefánsson gítarleikari og Rafn Haraldsson trommuleikari.
Axel mun hafa komið síðastur inn í sveitina og gæti því annar bassaleikari hafa verið í henni í upphafi.














































