
Guðlaugur og Kristinn Júníussynir
Í dag eru afmælisbörn á skrá Glatkistunnar tvö talsins en þau eru eftirfarandi:
Tvíburabræðurnir Kristinn og Guðlaugur Júníussynir eru fertugir á þessum annars ágæta degi en þeir eru eins og kunnugt er af mikilli tónlistarfjölskyldu. Þeir bræður hafa mikið unnið saman í tónlist sinni, voru í hljómsveitum eins og Tjalz Gissur, Vinyl (Vínyll), Lace, Jet Black Joe (undir það síðasta), Jetz og Music zoo en einnig hafa starfað starfað í öðrum sveitum í sitt hvoru lagi.