
Icetone 4 2
Gítardúettinn Icetone 4 2 fór víða um landið með tónleikadagskrá sína veturinn 1995-96.
Það voru þeir Símon H. Ívarsson og Michael Hillenstedt gítarleikarar sem skipuðu dúettinn en sá síðarnefndi var Þjóðverji sem bjó hér á landi og starfaði um nokkurra ára skeið.
Icetone 4 2 flutti blandaða dagskrá á tónleikum sínum sem hafði að geyma gítarverk frá ýmsum löndum.














































