Á fætur

Á fætur
(Lag / texti: sænskt þjóðlag / Grímur Thomsen)

Táp og fjör og frískir menn
finnast hér á landi enn,
þéttir á velli og þéttir í lund,
þrautgóðir á raunastund.
Djúp og blá blíðum hjá,
brosa drósum hvarmaljós,
norðurstranda stuðlaberg
stendur enn á gömlum merg.

Aldnar róma raddir þar
reika svipir fornaldar,
hljótt um láð og svalan sæ,
sefur hetja á hverjum bæ.
Því er úr doðadúr,
drengir, mál að hrífa sál,
feðra vorra og feta í spor
fyrr en lífs er gengið vor.

[m.a. á plötunni Leikfélag Reykjavíkur 75 ára – úr leikritum]