Ekki

Ekki
(Lag / texti: Guðmundur Jónsson / Stefán Hilmarsson)

Segðu alveg eins og er, ekki fela fyrir mér.
Sýndu öll þín spil. Sýndu öll þín spil.
Dragðu ekki dul á neitt.
Engin gef ég þér grið, ekki leita á önnur mið.
Sjáðu hér er ég. Sjáðu hér er ég.
Haltu ekki að þér hönd.

viðlag
Dagur kemur og dagur fer brátt er húmið hér.
Dugir skammt að draga á langinn er á meðan er.
Engan veginn ég ætla mér annað en þig.
Dreptu nú úr dróma þína ást.

Viltu líta mér við, ekki velja önnur mið.
Það er allt og sumt. Það er allt og sumt.
Enga á ég aðra bón. Enga á ég aðra bón.

Segðu alveg eins og er, ekki fela fyrir mér.
Sjáðu öll mín spil. Sjáðu öll mín spil.
Dragðu ekki dul á neitt.
Dragðu ekki dul á neitt.
Dragðu ekki dul á neitt.

[m.a. á plötunni Sálin hans Jóns míns – Garg]