Lofsöngur

Lofsöngur
(Lag / texti: Sveinbjörn Sveinbjörnsson / Matthías Jochumsson)

Ó, guð vors lands, ó lands vors guð,
vér lofum þitt heilaga, heilaga nafn.
Úr sólkerfum himnanna hnýta þér krans,
þínir herskarar, tímanna safn.
Fyrir þér er einn dagur sem þúsund ár
og þúsund ár dagur ei meir.
Eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár
sem tilbiður guð sinn og deyr.
Íslands þúsund ár, Íslands þúsund ár,
eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár
sem tilbiður guð sinn og deyr.

Ó guð, ó guð, vér föllum fram
og fórnum þér brennandi, brennandi sál,
guð faðir, vor drottinn frá kyni til kyns
og vér kvökum vort helgasta mál.
Vér kvökum og þökkum í þúsund ár
því þú ert vort einasta skjól.
Vér kvökum og þökkum með titrandi tár
því þú tilbjóst vort forlagahjól.
Íslands þúsund ár, Íslands þúsund ár,
voru morgunsins húmköldu, hrynjandi tár
sem hitna við skínandi sól.

Ó guð vors lands, ó lands vors guð,
vér lifum sem blaktandi, blaktandi strá,
vér deyjum ef þú ert ei ljós það og líf
sem að lyftir oss duftinu frá.
Ó, vert þú hvern morgun vort ljúfasta líf
vor leiðtogi í daganna þraut
og á kvöldin vor himneska hvíld og vor hlíf
og vor hertogi á þjóðlífsins braut.
Íslands þúsund ár, Íslands þúsund ár,
verði gróandi þjóðlíf með þverrandi tár
sem þroskast á guðsríkis braut.

[m.a. á plötunni Gradualekór Langholtskirkju – Ég bið að heilsa]