Sumarkveðja
(Lag / texti: Ingi T. Lárusson / Páll Ólafsson)
Ó blessuð vertu sumarsól
er sveipar gulli dal og hól
og gyllir fjöllin himinhá
og heiðarvötnin blá.
Nú fossar, lækir, unnir, ár
sér una við þitt gyllta hár,
nú fellur heitur haddur þinn
um hvíta jökulinn.
Þú klæðir allt í gull og glans,
þú glæðir allar vonir manns
og hvar sem tárin hvika á kinn,
þau kyssir geislinn þinn.
Þú fyllir dalinn fuglasöng,
nú finnast ekki dægrin löng
og heim í sveitir sendirðu æ
úr suðri hlýjan blæ.
Þú frjóvgar, gleður, fæðir allt
um fjöll og dali og klæðir allt
og gangirðu undir, gerist kalt,
þá grætir þig líka allt.
Ó, blessuð vertu sumarsól
er sveipar gulli dal og hól
og gyllir fjöllin himinhá
og heiðarvötnin blá.
[m.a. á plötunni Strákarnir okkar: annar hluti 1970-1994 – ýmsir]