3ToOne (1995-96 / 2024-)

3TO1

3ToOne  (Three to one / 3to1) var upphaflega tríó sem starfaði sumarið 1995, líklegast fyrst í kringum tónlistarhátíðina UXA sem haldin var við Kirkjubæjarklaustur þá um verslunarmannahelgina.

Sveitina skipuðu þá Egill Ólafsson söngvari, Sigurður Gröndal gítarleikari og Ingólfur Guðjónsson hljómborðsleikari þeir félagar fluttu eins konar rafdjass með þjóðlagaívafi.

3ToOne starfaði áfram um veturinn, lék á nokkrum tónleikum á höfuðborgarsvæðinu og um áramót bættust Mezzoforte liðarnir Gunnlaugur Briem trommuleikari og Jóhann Ásmundsson bassaleikari í hópinn, þannig skipuð starfaði sveitin í einhverjar vikur en hætti líklega störfum í febrúar 1996.

Sveitin tók upp á sínum tíma lög á heila plötu en erfitt reyndist að finna útgefanda að efninu enda þótti það nokkuð tormelt. Ekkert varð því úr útgáfu að sinni en sumarið 2024 var rykið dustað af upptökunum og þær yfirfærðar á stafrænt form. Platan kom svo loks út haustið 2026 samnefnd sveitinni og þá voru þremenningarnir Egill, Sigurður og Ingólfur í forsvari fyrir sveitina og gáfu plötuna sjálfir út. Skífan kom út á tónlistarveitum en einnig í takmörkuðu upplagi á vínylformi.

Efni á plötum