Á árunum 1981 og 82 (að minnsta kosti) starfaði unglingahljómsveit undir nafninu Titanic í Vestmannaeyjum, hún var nokkuð öflug í spilamennskunni í eyjunni og þar lék á fjölmörgum böllum.
Meðlimir sveitarinnar voru Grímur Þór Gíslason trommuleikari (síðar þekktur sem Grímur kokkur), Óðinn Hilmisson bassaleikari, Guðjón Ólafsson gítarleikari, Helga Björk Óskarsdóttir söngkona, Arnar [Óskarsson eða Jónsson] gítarleikari og Þráinn Óskarsson gítarleikari.
Eiður Arnarsson bassaleikari (Stjórnin, Todmobile o.fl.) tók við af Óðni haustið 1981 og á einhverjum tímapunkti var Jóhannes Ágúst Stefánsson (Gústi) hljómborðsleikari og söngvari í sveitinni, fleiri gætu jafnframt hafa komið við sögu hennar.