Tríó Árna Elfar var sett saman sérstaklega fyrir tónleika með saxófónleikaranum Ronnie Scott sem haldnir voru í Gamla bíói sumarið 1952 en lék reyndar um svipað leyti einnig á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Tríóið hélt áfram störfum eftir tónleikana og spilaði einnig með píanóleikaranum Cab Kaye ári síðar og svo einnig undir söng bresku söngkonunnar Lindu Lane.
Meðlimir tríósins voru Jón Sigurðsson bassaleikari, Guðmundur Steingrímsson trommuleikari og Árni Elfar sem lék á píanó.
Árni var svo með tríó einnig veturinn 1953-54 á Hótel Kea á Akureyri og þar léku með honum þeir Sverrir Garðarsson trommuleikari og Sigurbjörn Ingþórsson bassaleikari.














































