Gleðigjafar [5] (2004-)

Gleðigjafar

Kór eldri borgara, Gleðigjafar hefur verið starfandi í Borgarnesi síðan árið 2004. Jón Þ. Björnsson var fyrsti stjórnandi Gleðigjafanna en Zsuzanna Budai hefur þó stjórnað honum lengst. Núverandi stjórnandi kórsins mun vera Jónína Erna Arnardóttir.

Meðlimir Gleðigjafa hafa yfirleitt verið um þrjátíu talsins en þeir eru allir á aldrinum sextíu ára og eldri.